klesst!!!!!!!!!!!

Er alveg á bömmer, Bakkaði á stóra hvíta súlu í gærkvöldi og braut afturljós og rispaði töluvert lakkið. Ástin mín sagði ekkert en tók verkfæri sér í hönd óg fór út. Hefði sennilega liðið aðeins betur ef hann hefði öskrað á mig. Þessi þögla meðferð fer alveg með mig :(

4 comments september 21, 2007 bibibeib

Hommar.

Jebb nú er það endanlega staðfest að það búa HOMMAR !!!!!! í götunni minni.

Var að keyra heim úr vinnunni í morgun og rekst þá á tvo frekar vel útlítandi menn gangandi í átt að bakaríinu og þeir “héldust í hendur!” Ég brosti nú bara og fékk svona heita tilfinningu um mig alla. Guð hvað þetta var krúttlegt. Ef þetta tiltekna par les þessa færslu (sem ég efast um) Þá segi ég bara “FLOTT hjá ykkur” mikið annskoti var ég ánægð að sjá þetta og vil bara benda öllum hommum sem ekki þora að bara láta vaða ;)

Mér finnst þetta æði

4 comments september 20, 2007 bibibeib

hvad er thetta eiginlega???

nú verð ég sko bara pirruð. Ætlar þessi bloggsíða líka að stríða mér ??? ég bara spyr sko!!!!! Nú er allt í einu ekki hægt að kommenta á færslurnar mína. eins og mér finnst nú gaman að fá kveðjur !!!!!. kannski er hægt að kommenta á þessa færslu. tékkum á því

5 comments september 18, 2007 bibibeib

innilokuð

er alveg að grotna í klofið á mér!!!!!!!! Ekki það að ég sé að kvarta ;) en hver heilvita kona getur orðið geðbiluð af að hanga inni ALLANN daginn yfir veiku barni, ég tala nú ekki um þegar að dagarnir eru orðnir 5!!!!! Auðvitað hef ég komist eitthvað pínu út seinustu 5 daga en það er kannski svona allt í allt 5 tímar og þá tel ég með bíóferðina á laugardagskv. og Bónus í gær!!!!!!!!!!!

Aumingja Stubburinn minn er ennþá lasin, með hita og hósta og er svo argur og pirraður og leiður og aumur og leiðinlegur að það hálfa væri nóg. Þolinmæði hans spannar 1 mín. í senn og ég finn hreinlega gráu hárinn spretta fram á höfðinu á mér. Það verður nú að viðurkennast að ég hlakka hreinlega til að fara að vinna næstu nótt, hreinlega til að skipta um umhverfi. Skítt með það þó ég fái svo engan svefn með viti á miðvikurdag því ég efast stórlega um að guttinn verði orðin frískur. Bara að ég komist aðeins ÚT!!!

Annars er ég hætt að kvarta núna ;) (var bara allt í einu komin með upp í kok) Ég er reyndar að komast aðeins út á morgun. Við hjónin púslum aðeins tíma okkar þar sem margt þarf að gera. ég semsagt byrja á að fara á fund í fyrramálið í bekknum hjá Rússínunni, einhver námskynning og svo er Mömmumorguninn stax í kjölfarið. Þannig að Ástin mín verður heima í fyrramálið og ég tek svo við frá hádegi til kl seks þegar hann kemur heim aftur. Þá verður stefnan væntanlega tekin í skólann hjá krökkunum aftur með þau í eftirdragi í skólapeysumátun. Reikna svo með að fara að sofa um 8 leitið fyrir vaktina aðra nótt. OOOOOOhhh ég hlakka hreinlega bara til að fara að gera eitthvað annað en að kubba og lita og fara í lestarleik o.s.frv.

Add comment september 17, 2007 bibibeib

jæja elskurnar

oh ég verð nú bara að monta mig aðeins ;)

þannig er nú mál með veksti að ég hef undanfarnar vikur horft með hryllingi á ört stækkandi ruslahrúguna inni í herbergi dóttur minnar og nú í dag fann ég loks neistann og orkuna til að byrja ;) Ég hef  alltaf sagt að hver hlutur og hver gjörningur hafi sinn rétta stað og tíma og tími þessa rýmis var semsagt komin ;)

Rykgríman var sett á andlitið, hanskarnir togaðir upp fyrir olnboga, tuskurnar settar í sápuvatn og fítonskrafturinn virkjaður.  4 tímum síðar er allt orðið spikk og span, ég meina við erum að tala um 7 fermetra ;)   ;)  ;)  ;) Það lá við að það hefði hreinlega borgað sig að flytja, það hefði eflaust tekið svipaðan tíma, ef ekki hreinlega skemur.  Stúlkan er náttúrulega yfir sig hrifin, veit núna hvar dótið er og það var náttúrulega drifið í því að bjóða öllum vinkonunum í heimsókn. Ég þori varla að líta inn til þeirra núna því ég hef lúmskan grun um að herbergið sé svipað viðhorfs eins og áður en ég byrjaði. Náttúrúlega mínus skítur samt.

Hamstrarnir fengu líka nýtt sag og salamöndrurnar fengu nýtt vatn þannig allir eru þvílík happý ;) og eftir sit ég hálfnötrandi eftir alla þessa áreynslu með gatslitna gúmmíhanska á olnbogunum og svitafýlu dauðans. EEEEEEEnnnnn ég er sátt og það er fyrir mestu, ekki satt.

Næsta mál á dagskrá er svo að koma út öllum hamstraungunum sem fæddust fyrir 3 vikum. Þeir eru reyndar svo svakalega sætir að ég vildi helst halda þeim öllum, en þeim fjölgar svo fljótt að við myndum sennilega rúlla út úr íbúðinni á hamstrafjalli eftir nokkrar vikur þannig að ef einhver vill þá eru hér til sölu nokkrir angúruhamstraungar af þvílíku gæðakyni að hvergi hefur annað eins sést. Svo ég hafi nú eftir orð dóttur minnar sem er annsi hörð í samningaviðræðunum : ” þeir seljast á 400 kr stykkið og ekki krónu minna.”

og þar hafið þið það.

Svona var svo minn dagur. Í kvöld er svo stefnan teki á Astrópíu með eldri son og dóttur en ástin verður eftir heima með stubbinn sem er ennþá lasin.

Love Bíbí 

Add comment september 15, 2007 bibibeib

………..

allt í vinnslu, fer hægt af stað ;)

ætla ekki að setja inn alla átaksbloggara sem ég ég var með áður, er bara með link hérna til hægri inn á gamla bloggið mitt og þar er hægt að nálgast þá. Þeir sem hafa áhuga á að ég skelli þeim inn á þessa síðu endilega látið mig vita og ég skal gera það.  Þangað til skelli ég inn smátt og smátt þeim sem ég heimsæki mest þessa dagana.

hlakka til að tjá skoðanir mínar á veðrinu, pissukallinum í götunni, fjölgun í hamstrabúrinu, veikindum barnanna. verðinu í búðunum, góðum kaupum og kanski átaki í megrunarmálum, hreyfingu og þess háttar ef ég get drullað mér í gang einhvern dagin ;)

kv. í bili Bíbí

4 comments september 14, 2007 bibibeib

loksins dreif ég í því

jæja þar kom loksins að því að ég dreif í því að búa mér til nýja bloggsíðu. Er svona smám saman að fá löngun til að tjá mig aftur á síðum netsins, hef sennilegast bloggað yfir mig bara ;)

þetta er allt í vinnslu ennþá þannig að þeir sem ekki enn hafa gefist upp á mér verða að sýna mér píííí´nu meiri biðlund ;)

kv. í bili Bíbí

Add comment september 14, 2007 bibibeib

Hello world!

Welcome to WordPress.com. This is your first post. Edit or delete it and start blogging!

2 comments september 14, 2007 bibibeib

Next Posts

Pages

Categories

Links

Meta

Calendar

nóvember 2009
M Þ M F F L S
« nóv    
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  

Most Recent Posts