Archive for nóvember, 2007




jiminn

Er sko bara ekki að standa mig í blogginu þessa dagana, það er nokkuð ljóst. ;) Er að reyna að rífa mig upp úr skrif og tölvuþunglyndi, er eiginlega komin með háfgert antípat á skjánum og fer aðeins til að tékka á póstinum mínum. heheh

Annars er allt í þessu ljúfasta hér á bæ. Rússínan var að fá enn einn nýjan kennarann (sá 3 frá því í ágúst) bekkurinn hennar hefur víst ekki verið sá heppnast þetta árið því að þeir eru allir að hrynja niður í einhver langveikindi :( Hún er náttúrulega alveg búin að fá nóg af þessu róti og er bara HÆTT!!! að eigin sögn. Er einhver þarna úti með góða Pollýönnu takta sem hann getur miðlað, er alveg orðin uppiskroppa með góð orð og hvatningu á morgnanna þegar ég hendi henni út nánast grátandi í skólann :(   Ekki auðvelt ástand en það mun leysast veit ég , bara kannski ekki af sjálfu sér.

Það verður bingó hjá bekknum annað kvöld þannig að ég er að fara í bingóvinningabetlleiðangur í hádeginu með hinum bekkjarfulltrúunum ;) slapp semsagt ekki heldur þetta árið, en minn tími mun koma þar sem ég verð ekki bekkjarfulltrúi, það er ég alveg sannfærð um ;)

3 comments nóvember 19, 2007

Akureyri

Skelltum okkur norður til Akureyrar um helgina því að það var vetrarfrí í skólanum og við náttúrulega bara nýttum tækifærið. Þetta var nú meiri leikhúshelgin því að á fimmtudagskv. bauð pabbi mér á forsýningu á leikritinu Ökutímar og var það alger snilld svo ekki sé meira sagt. Það er alveg skiljanlegt að það er uppselt á næstu 20 sýningar og var það fyrst frumsýnt seinasta föstudag. Ég mæli semsagt eindregið með því að fólk skelli sér norður í leikhús.  Svo var nú mikið brallað yfir helgina. heimsóttum fullt af fólki og skemmtum okkur konunglega.

Ég skellti mér í heimsókn til æskuvinkonu minnar og var önnur æskuvinkona með í för ;) þar fór fram heljarinnar tollskoðun á hinum ýmsu gerðum af bailies, ópal, bjór og fleiru þannig að það má segja að ég hafi verið þokkalega skökk þegar ég fór að sofa ;) var víst heldur ekki sú hressasta í húsinu morguninn eftir ;) heheheh svaka gaman hjá okkur, mikið hlegið og spjallað. takk kærlega fyrir góðar stundir stelpur ;)

Við krakkarnir fórum og renndum okkur á russlapokum eins og gert var í gamladaga og svo bjuggum við til snjóapa, með roða í kinnum og kalda fingur klöngruðumst við svo í gegnum snjó og krap heim í orlofsíbúð og fengum okkur heitt kakó og kringlur. ég get svo svarið það að ég held að ég hafi yngst um einhver 20 ár við þetta. Mikið ofsalega var gaman hjá okkur og mikið líður manni vel eftir svona góðar stundir með börnunum þar sem maður er ekki alltaf að jagast og skammast eins og mér finnst ég gera allt of mikið af.

Á sunnud. fórum við svo í leikhús aftur en þá var Rússínan með í för og auðvitað ástin mín eina, pabbi amma, afi og svo einn 9 ára frændi. Við fórum að sjá Óvitana og er það sko líka alveg snilldarleikritt. Brosið var fast á andlitunum á okkur öllum, sko ekki síst eldra fólkinu en því yngra. mæli sko líka með því. Langar eiginlega bara að fara aftur á það svei mér þá :) Stubburinn var í pössun hjá vinkonu minni á meðan og Sveskjan var farin með flugi suður til að keppa á snókermóti þannig að við drifum okkur bara upp í bíl og brenndum heim (suður) aftur.

Þetta var geggjuð helgi og mun lifa lengi í minningunum það er á hreinu. Takk fyrir okkur norðurland.

3 comments nóvember 5, 2007

Pages

Categories

Links

Meta

Calendar

nóvember 2007
M Þ M F F L S
« okt    
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Posts by Month

Posts by Category