lasin
október 22, 2007
bibibeib
jæja það hlaut að koma að því að ég veiktist líka. núna eru krakkarnir búnir að vera veikir meira eða minna til skiptis eða saman í hátt á 7 viku og nú er ég löggst!!!
Horið lekur og hausinn er að springa, til að bæta gráu ofan á svart þá er skipulagsdagur í skólanum hjá krökkunum þannig að þau eru heima og rífast eins og hundur og köttur. Eini ljósi punkturinn er að Stubburinn fór í leikskólann í morgun þannig að það er frí frá honum til kl 4. Er í þannig ástandi að mig langar helst til að grafa mig undir þúfu einhverstaðar og vera þar, leggjast í hýði í helli eins og bangsi. búhúhú aumingja ég……………… er farin aftur inn í rúm með eyrnatappa, voandi líður mér betur seinnipartinn.
Entry Filed under: Uncategorized
Add your own
Skildu eftir svar
Trackback this post | Subscribe to comments via RSS Feed
1.
Bryndís |
október 22, 2007 klukkan 6:39 pm
Láttu þér batna skvís.:):)
2.
Jokka |
október 23, 2007 klukkan 9:43 am
Æ elsku hjartað :/ sendi þér knús..lýsistöflur, ólífulauf og sítrónute…parkódín og undir sæng (Y) þá ætti þetta að skána strax
kv JOkkz