Archive for október 7th, 2007




pínu búin ;)

jæja nú er ég “bara” þreytt ;) stóð í allan gærdag og bakaði og bakaði fyrir afmæli stubbsins sem var haldið í dag. 3ggja ára takk fyrir !!!! Litla barnið mitt bara að verða stórt ;) Svona líður tíminn hratt, fannst hann bara hafa fæðst í gær og er bara með smá tregatilfinningu ;)

elisElis

Afmælið gekk bara vel og var hann með smá gestastæla náttúrulega í byrjun, annað ekki hægt þegar maður fær allt í einu svona mikla athyggli ;) Gjafirnar votu sko ekki af verri endanum og gat ég ekki betur séð en að hann hafi verið alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman ;)   Vil bara hér með þakka öllum kærleg fyrir fyrir hans hönd ;)

Elis

Nú eru bara 4 daga í Búdapest og er ég náttúrulega alveg svakalega spennt. Er búin að borga miðana mína fyrir löngu en er ekki komin með þá í hendurnar þannig að ef þeir eruekki komnir í póstkassann minn á morgun þá hringi ég sko, það er alveg á hreinu. Finnst þetta fullseint, en kannski er ég bara svona mikil öryggisfrík ;)

þar til næst, tata

4 comments október 7, 2007

Pages

Categories

Links

Meta

Calendar

október 2007
M Þ M F F L S
« sep   nóv »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031  

Posts by Month

Posts by Category