Sarpur fyrir október 2007
snilld!!!!
var rétt í þessu að fá póst frá Atlantsolíu þar sem mér var bent á að ég get látið læsa dælulyklinum mínum þannig að ég get bara keypt til dæmis bensín, eða diesel. Þetta kemur náttúrulega í veg fyrir að svona blondínur eins og ég dæli vitlausri tegund á bílinn hefur reyndar ekki gerst enn, en verið þokkalega nálægt því nokkrum sinnum. Þetta er náttúrulega þjónusta sem ég ætla að nýta mér til fulls og bendi öðrum ljóskum með sama vadamál og ég að gera hið sama hið snarasta
Er öll að stíga upp úr hori og hita, eflaust ykkar góðu hugsunum að þakka
4 ummæli október 23, 2007
lasin
jæja það hlaut að koma að því að ég veiktist líka. núna eru krakkarnir búnir að vera veikir meira eða minna til skiptis eða saman í hátt á 7 viku og nú er ég löggst!!!
Horið lekur og hausinn er að springa, til að bæta gráu ofan á svart þá er skipulagsdagur í skólanum hjá krökkunum þannig að þau eru heima og rífast eins og hundur og köttur. Eini ljósi punkturinn er að Stubburinn fór í leikskólann í morgun þannig að það er frí frá honum til kl 4. Er í þannig ástandi að mig langar helst til að grafa mig undir þúfu einhverstaðar og vera þar, leggjast í hýði í helli eins og bangsi. búhúhú aumingja ég……………… er farin aftur inn í rúm með eyrnatappa, voandi líður mér betur seinnipartinn.
2 ummæli október 22, 2007
komin heim
Fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því þá er ég komin heim
Ég var úti í Búdapest og skemmti mér alveg konunglega með vinnufélögum mínum og góðri vinkonu. ég nenni ekki að skrifa um allt sem við gerðum, en eitt af því var “EKKI” að fara í moll
Við gerðum sko allt annað, eins og að fara í nudd og baðhús og skoðunarferðir og labba um og túristast með myndavélina á lofti já og ekki má gleyma borða góðan mat fyrir hlægilega lítinn aur á svakalega flottum veitingarhúsum og drekka vín og bjór og palinku og tokaij og og og….
Þið sem viljið vita meira verðið bara að bjalla í mig eða kíkja í heimsókn
svo ætla ég að setja nokkrar myndir inn á eftir ef að þær hafa tekist þ.e.a.s. því að myndavélinn varð batteríslaus á degi 2 og keyptar voru einnota myndavélar og smellt af í gríð og erg. Er semsagt að fara og ná í þær úr framköllun á eftir eins og gert var í gamla daga
1 comment október 19, 2007
pínu búin ;)
jæja nú er ég “bara” þreytt
stóð í allan gærdag og bakaði og bakaði fyrir afmæli stubbsins sem var haldið í dag. 3ggja ára takk fyrir !!!! Litla barnið mitt bara að verða stórt
Svona líður tíminn hratt, fannst hann bara hafa fæðst í gær og er bara með smá tregatilfinningu
Afmælið gekk bara vel og var hann með smá gestastæla náttúrulega í byrjun, annað ekki hægt þegar maður fær allt í einu svona mikla athyggli
Gjafirnar votu sko ekki af verri endanum og gat ég ekki betur séð en að hann hafi verið alveg í skýjunum yfir þessu öllu saman
Vil bara hér með þakka öllum kærleg fyrir fyrir hans hönd
Nú eru bara 4 daga í Búdapest og er ég náttúrulega alveg svakalega spennt. Er búin að borga miðana mína fyrir löngu en er ekki komin með þá í hendurnar þannig að ef þeir eruekki komnir í póstkassann minn á morgun þá hringi ég sko, það er alveg á hreinu. Finnst þetta fullseint, en kannski er ég bara svona mikil öryggisfrík
þar til næst, tata
4 ummæli október 7, 2007