Archive for september 26th, 2007
detti mér nú allar dauðar lýs úr…….
á dauða mínum átti ég nú kannski von þegar ég haltraði yfir á læknavaktina að drepast í vinstri fæti sem var orðin útlítandi eins og uppblásin blaðra. Ýmsar hugsanir höfðu nú farið í gegnum hugann, alltaf tilbúin til að sjúkdómsgreina sjálfa mig. Þetta gæti verið blóðtappi í kálfa, löppin jú heit og bólgin viðkomu. Rauði bletturinn á ristinni gæti líka verið upphaf húðsýkingar, eða ristills þar sem ég komst í snertingu við hlaupabóluna nýverið. Jú ég gæti nú líka bara hafa rekið mig í eitthvað án þess að hafa tekið eftir því og þetta væri bara svona svakalega djúpt mar. Eins og sjá má var ég nú þokkalega viðbúin öllu því sem læknirinn gæti fundið upp á . en að vera með sinaslíðursbólgu í fæti datt mér nú ekki í hug. Sko bara alltaf læri ég eitthvað nýtt. Mín haltraði aftur heim á leið dauðfegin að vera ekki með blóðtappa, með fullan poka af apotekaranammi (ibufen, furix, felden gel ofl.) Næsta mál á dagskrá er að gleypa eitthvað af þessum töflum og setjast svo á koppinn og pissa eins og fjandinn og sjá svo hvort bólgan minnki ekki. Hef fram yfir helgi með að láta mér batna því ef engin breyting verður á á að tékka á æða og sogæðagkerfinu í fætinum. Nenni því ekki
Stubburinn var líka lasarus í dag og fór til læknis, komin með eyrnabólgu (greit!!!
) og þar af leiðandi allt því tilheirandi. Við doksi vorum sammála um að við yrðum að hætta að hittast svona ( sá sami á vaktinni og tók á móti stubbnum) Þetta væri nú bara að verða grunsamlegt
1 comment september 26, 2007
svikin!!!
Ég get nú ekki orða bundist Þar sem ég er svo hneyksluð og sár fyrir hönd dóttur minnar. Þannig er mál með vexti að fyrir 4 vikum eignaðist hamsturinn hennar unga sem nú 4 vikum síðar eru klárir á ný heimili. Þar sem að við höfum ekkert með 10 hamstra að gera (er svo lítið kjöt á þeim að það tekur sig ekki að gera tilraunir í eldhúsinu) þá var farið á stúfana og haft samband við dýrabúðir hér í bæ. Ákveðið var að fara með ungana til hæstbjóðanda sem sagði í símann að hann myndi greiða 450 kr. fyrir stykkið. Mín snúlla náttúrulega himinlifandi og sá fyrir sér allt minipetsdótið sem hún gæti keypt fyrir aurinn (ekki mikið fyrir að spara sú
) Jæja arkað var af stað með hauginn í kassa í búðina þar sem hún gekk stolt upp að afgreiðsluborðinu og tilkynnti komu sína. Ég ákvað að láta hana alfarið um þetta enda hefur hún gott af reynslunni og er fullfær um að sjá um sín viðskipti sjálf. Ég fylgdist bara vel með álengdar til að sjá hvort allt færi ekki vel fram. Viti menn, maðurinn sem ég hafði talað við í síma daginn áður birtist og sagðist skyldu taka hamstarana, dóttir mín horfði bara á hann og beið og hann starði á hana á móti og þegar að þögnin var orðin óþolandi vatt ég mér að borðinu og spurði hvort það væru nú ekki alveg örugglega 450 kr stykkið. Þið vitið bara svona kammó í tóninum eins og að gefa honum hinnt um að nú væri komið að því skrefi í viðskiptaferlinu að hann gerði upp við barnið. Haldiði að kallinn fari ekki að þræta við mig. Heldur því fram að hann hafi nóg af hömstrum og geti tekið þá endurgjaldslaust og að hann hafi aldrei gefið annað í skyn og hvað þá að hann hafi gefið mér upp verð því svoleiðis geri hann alls ekki í símann. Ég stóð bara og gapti framan í kallinn og dóttir mín starði líka á hann í forundran, síðan tók ég kassann með ungunum undir höndina, þakkaði honum pennt fyrir “GÓÐ VIÐSKIPTI” og fór út. Rússínan fór náttúrulega að gráta og skildi ekki neitt. Ég reyndi að útskýra fyrir henni að það hlyti bara að hafa orðið einhver miskilningur hjá mér í símanum og reyndi svona að milda aðstæður aðeins en nei, það dugði ekki til. Dóttir mín starði á mig og sagði svo “mamma! hann var bara að svindla á mér af því að ég er krakki!!! afhverju er fólk svona vont?” ég spyr nú að því sama? skil ekki svona viðskiptahætti og mun hér með fara með öll mín dýraviðskipti annað.
ég ákvað að nefna ekki viðkomandi dýrabúð með nafni þar sem ég veit fyrir víst að þetta var ekki eigandinn sem ég var að hafa samskipti við og óréttlátt er að láta þá líða fyrir ömurlegan starfsmann. Máttur bloggsins er ótrúlega mikill, en ég vildi bara aðeins pústa út og reyna að klára dæmið á þennann hátt, Er bara enn sjóðandi vitlaus yfir þessu öllu saman.
4 comments september 26, 2007