Archive for september, 2007
lasin!!!!!
það á nú ekki af stubbnum að ganga. Eyrnabólga á þriðjudag og svo er hann núna komin með hlaupabóluna. Er þetta ekki komið nóg?? ég spyr.
Tupperwarekynning hjá mér í kvöld og ég get ekki sagt að ég sé búin að standa sveitt í þrifum. Nenni þessu ekki núna, er bara þreytt
2 tíma svefn eftir nætruvakt er bara ekki nóg og ég hlakka til að fara að sofa í kvöld. Sé fram á viku heima með lasarusinn minn og svo er 3 ára afmæli næstu helgi.
2 comments september 28, 2007
detti mér nú allar dauðar lýs úr…….
á dauða mínum átti ég nú kannski von þegar ég haltraði yfir á læknavaktina að drepast í vinstri fæti sem var orðin útlítandi eins og uppblásin blaðra. Ýmsar hugsanir höfðu nú farið í gegnum hugann, alltaf tilbúin til að sjúkdómsgreina sjálfa mig. Þetta gæti verið blóðtappi í kálfa, löppin jú heit og bólgin viðkomu. Rauði bletturinn á ristinni gæti líka verið upphaf húðsýkingar, eða ristills þar sem ég komst í snertingu við hlaupabóluna nýverið. Jú ég gæti nú líka bara hafa rekið mig í eitthvað án þess að hafa tekið eftir því og þetta væri bara svona svakalega djúpt mar. Eins og sjá má var ég nú þokkalega viðbúin öllu því sem læknirinn gæti fundið upp á . en að vera með sinaslíðursbólgu í fæti datt mér nú ekki í hug. Sko bara alltaf læri ég eitthvað nýtt. Mín haltraði aftur heim á leið dauðfegin að vera ekki með blóðtappa, með fullan poka af apotekaranammi (ibufen, furix, felden gel ofl.) Næsta mál á dagskrá er að gleypa eitthvað af þessum töflum og setjast svo á koppinn og pissa eins og fjandinn og sjá svo hvort bólgan minnki ekki. Hef fram yfir helgi með að láta mér batna því ef engin breyting verður á á að tékka á æða og sogæðagkerfinu í fætinum. Nenni því ekki
Stubburinn var líka lasarus í dag og fór til læknis, komin með eyrnabólgu (greit!!!
) og þar af leiðandi allt því tilheirandi. Við doksi vorum sammála um að við yrðum að hætta að hittast svona ( sá sami á vaktinni og tók á móti stubbnum) Þetta væri nú bara að verða grunsamlegt
1 comment september 26, 2007
svikin!!!
Ég get nú ekki orða bundist Þar sem ég er svo hneyksluð og sár fyrir hönd dóttur minnar. Þannig er mál með vexti að fyrir 4 vikum eignaðist hamsturinn hennar unga sem nú 4 vikum síðar eru klárir á ný heimili. Þar sem að við höfum ekkert með 10 hamstra að gera (er svo lítið kjöt á þeim að það tekur sig ekki að gera tilraunir í eldhúsinu) þá var farið á stúfana og haft samband við dýrabúðir hér í bæ. Ákveðið var að fara með ungana til hæstbjóðanda sem sagði í símann að hann myndi greiða 450 kr. fyrir stykkið. Mín snúlla náttúrulega himinlifandi og sá fyrir sér allt minipetsdótið sem hún gæti keypt fyrir aurinn (ekki mikið fyrir að spara sú
) Jæja arkað var af stað með hauginn í kassa í búðina þar sem hún gekk stolt upp að afgreiðsluborðinu og tilkynnti komu sína. Ég ákvað að láta hana alfarið um þetta enda hefur hún gott af reynslunni og er fullfær um að sjá um sín viðskipti sjálf. Ég fylgdist bara vel með álengdar til að sjá hvort allt færi ekki vel fram. Viti menn, maðurinn sem ég hafði talað við í síma daginn áður birtist og sagðist skyldu taka hamstarana, dóttir mín horfði bara á hann og beið og hann starði á hana á móti og þegar að þögnin var orðin óþolandi vatt ég mér að borðinu og spurði hvort það væru nú ekki alveg örugglega 450 kr stykkið. Þið vitið bara svona kammó í tóninum eins og að gefa honum hinnt um að nú væri komið að því skrefi í viðskiptaferlinu að hann gerði upp við barnið. Haldiði að kallinn fari ekki að þræta við mig. Heldur því fram að hann hafi nóg af hömstrum og geti tekið þá endurgjaldslaust og að hann hafi aldrei gefið annað í skyn og hvað þá að hann hafi gefið mér upp verð því svoleiðis geri hann alls ekki í símann. Ég stóð bara og gapti framan í kallinn og dóttir mín starði líka á hann í forundran, síðan tók ég kassann með ungunum undir höndina, þakkaði honum pennt fyrir “GÓÐ VIÐSKIPTI” og fór út. Rússínan fór náttúrulega að gráta og skildi ekki neitt. Ég reyndi að útskýra fyrir henni að það hlyti bara að hafa orðið einhver miskilningur hjá mér í símanum og reyndi svona að milda aðstæður aðeins en nei, það dugði ekki til. Dóttir mín starði á mig og sagði svo “mamma! hann var bara að svindla á mér af því að ég er krakki!!! afhverju er fólk svona vont?” ég spyr nú að því sama? skil ekki svona viðskiptahætti og mun hér með fara með öll mín dýraviðskipti annað.
ég ákvað að nefna ekki viðkomandi dýrabúð með nafni þar sem ég veit fyrir víst að þetta var ekki eigandinn sem ég var að hafa samskipti við og óréttlátt er að láta þá líða fyrir ömurlegan starfsmann. Máttur bloggsins er ótrúlega mikill, en ég vildi bara aðeins pústa út og reyna að klára dæmið á þennann hátt, Er bara enn sjóðandi vitlaus yfir þessu öllu saman.
4 comments september 26, 2007
klesst!!!!!!!!!!!
Er alveg á bömmer, Bakkaði á stóra hvíta súlu í gærkvöldi og braut afturljós og rispaði töluvert lakkið. Ástin mín sagði ekkert en tók verkfæri sér í hönd óg fór út. Hefði sennilega liðið aðeins betur ef hann hefði öskrað á mig. Þessi þögla meðferð fer alveg með mig
4 comments september 21, 2007
Hommar.
Jebb nú er það endanlega staðfest að það búa HOMMAR !!!!!! í götunni minni.
Var að keyra heim úr vinnunni í morgun og rekst þá á tvo frekar vel útlítandi menn gangandi í átt að bakaríinu og þeir “héldust í hendur!” Ég brosti nú bara og fékk svona heita tilfinningu um mig alla. Guð hvað þetta var krúttlegt. Ef þetta tiltekna par les þessa færslu (sem ég efast um) Þá segi ég bara “FLOTT hjá ykkur” mikið annskoti var ég ánægð að sjá þetta og vil bara benda öllum hommum sem ekki þora að bara láta vaða
Mér finnst þetta æði
4 comments september 20, 2007
hvad er thetta eiginlega???
nú verð ég sko bara pirruð. Ætlar þessi bloggsíða líka að stríða mér ??? ég bara spyr sko!!!!! Nú er allt í einu ekki hægt að kommenta á færslurnar mína. eins og mér finnst nú gaman að fá kveðjur !!!!!. kannski er hægt að kommenta á þessa færslu. tékkum á því
5 comments september 18, 2007
innilokuð
er alveg að grotna í klofið á mér!!!!!!!! Ekki það að ég sé að kvarta
en hver heilvita kona getur orðið geðbiluð af að hanga inni ALLANN daginn yfir veiku barni, ég tala nú ekki um þegar að dagarnir eru orðnir 5!!!!! Auðvitað hef ég komist eitthvað pínu út seinustu 5 daga en það er kannski svona allt í allt 5 tímar og þá tel ég með bíóferðina á laugardagskv. og Bónus í gær!!!!!!!!!!!
Aumingja Stubburinn minn er ennþá lasin, með hita og hósta og er svo argur og pirraður og leiður og aumur og leiðinlegur að það hálfa væri nóg. Þolinmæði hans spannar 1 mín. í senn og ég finn hreinlega gráu hárinn spretta fram á höfðinu á mér. Það verður nú að viðurkennast að ég hlakka hreinlega til að fara að vinna næstu nótt, hreinlega til að skipta um umhverfi. Skítt með það þó ég fái svo engan svefn með viti á miðvikurdag því ég efast stórlega um að guttinn verði orðin frískur. Bara að ég komist aðeins ÚT!!!
Annars er ég hætt að kvarta núna
(var bara allt í einu komin með upp í kok) Ég er reyndar að komast aðeins út á morgun. Við hjónin púslum aðeins tíma okkar þar sem margt þarf að gera. ég semsagt byrja á að fara á fund í fyrramálið í bekknum hjá Rússínunni, einhver námskynning og svo er Mömmumorguninn stax í kjölfarið. Þannig að Ástin mín verður heima í fyrramálið og ég tek svo við frá hádegi til kl seks þegar hann kemur heim aftur. Þá verður stefnan væntanlega tekin í skólann hjá krökkunum aftur með þau í eftirdragi í skólapeysumátun. Reikna svo með að fara að sofa um 8 leitið fyrir vaktina aðra nótt. OOOOOOhhh ég hlakka hreinlega bara til að fara að gera eitthvað annað en að kubba og lita og fara í lestarleik o.s.frv.
Add comment september 17, 2007
jæja elskurnar
oh ég verð nú bara að monta mig aðeins
þannig er nú mál með veksti að ég hef undanfarnar vikur horft með hryllingi á ört stækkandi ruslahrúguna inni í herbergi dóttur minnar og nú í dag fann ég loks neistann og orkuna til að byrja
Ég hef alltaf sagt að hver hlutur og hver gjörningur hafi sinn rétta stað og tíma og tími þessa rýmis var semsagt komin
Rykgríman var sett á andlitið, hanskarnir togaðir upp fyrir olnboga, tuskurnar settar í sápuvatn og fítonskrafturinn virkjaður. 4 tímum síðar er allt orðið spikk og span, ég meina við erum að tala um 7 fermetra
;)
Það lá við að það hefði hreinlega borgað sig að flytja, það hefði eflaust tekið svipaðan tíma, ef ekki hreinlega skemur. Stúlkan er náttúrulega yfir sig hrifin, veit núna hvar dótið er og það var náttúrulega drifið í því að bjóða öllum vinkonunum í heimsókn. Ég þori varla að líta inn til þeirra núna því ég hef lúmskan grun um að herbergið sé svipað viðhorfs eins og áður en ég byrjaði. Náttúrúlega mínus skítur samt.
Hamstrarnir fengu líka nýtt sag og salamöndrurnar fengu nýtt vatn þannig allir eru þvílík happý
og eftir sit ég hálfnötrandi eftir alla þessa áreynslu með gatslitna gúmmíhanska á olnbogunum og svitafýlu dauðans. EEEEEEEnnnnn ég er sátt og það er fyrir mestu, ekki satt.
Næsta mál á dagskrá er svo að koma út öllum hamstraungunum sem fæddust fyrir 3 vikum. Þeir eru reyndar svo svakalega sætir að ég vildi helst halda þeim öllum, en þeim fjölgar svo fljótt að við myndum sennilega rúlla út úr íbúðinni á hamstrafjalli eftir nokkrar vikur þannig að ef einhver vill þá eru hér til sölu nokkrir angúruhamstraungar af þvílíku gæðakyni að hvergi hefur annað eins sést. Svo ég hafi nú eftir orð dóttur minnar sem er annsi hörð í samningaviðræðunum : ” þeir seljast á 400 kr stykkið og ekki krónu minna.”
og þar hafið þið það.
Svona var svo minn dagur. Í kvöld er svo stefnan teki á Astrópíu með eldri son og dóttur en ástin verður eftir heima með stubbinn sem er ennþá lasin.
Love Bíbí
Add comment september 15, 2007
………..
allt í vinnslu, fer hægt af stað
ætla ekki að setja inn alla átaksbloggara sem ég ég var með áður, er bara með link hérna til hægri inn á gamla bloggið mitt og þar er hægt að nálgast þá. Þeir sem hafa áhuga á að ég skelli þeim inn á þessa síðu endilega látið mig vita og ég skal gera það. Þangað til skelli ég inn smátt og smátt þeim sem ég heimsæki mest þessa dagana.
hlakka til að tjá skoðanir mínar á veðrinu, pissukallinum í götunni, fjölgun í hamstrabúrinu, veikindum barnanna. verðinu í búðunum, góðum kaupum og kanski átaki í megrunarmálum, hreyfingu og þess háttar ef ég get drullað mér í gang einhvern dagin
kv. í bili Bíbí
4 comments september 14, 2007
loksins dreif ég í því
jæja þar kom loksins að því að ég dreif í því að búa mér til nýja bloggsíðu. Er svona smám saman að fá löngun til að tjá mig aftur á síðum netsins, hef sennilegast bloggað yfir mig bara
þetta er allt í vinnslu ennþá þannig að þeir sem ekki enn hafa gefist upp á mér verða að sýna mér píííí´nu meiri biðlund
kv. í bili Bíbí
Add comment september 14, 2007
| Previous Posts |